91.223 krónur á mánuði miðað við 25% bótarétt. Þetta er lágmarks bótaréttur.
Framfærsla barna
14.595 krónur á mánuði eru greiddar fyrir hvert barn yngra en 18 ára. Skilyrði er að umsækjandi hafi börnin á framfæri.
Tekjutenging
575.246 krónur á mánuði er hámark tekjutengdra atvinnuleysisbóta.
Enginn getur fengið hærri atvinnuleysisbætur en sem nemur þessari upphæð, sama hversu há laun viðkomandi hafði.
Umsækjendur sem sæta biðtíma í upphafi bótatímabils eiga ekki rétt á tekjutengdum atvinnuleysisbótum.
Tekjutengdar atvinnuleysisbætur eru 70% af meðaltali heildarlauna. Upphæðin verður þó aldrei hærri en 575.246 krónur á mánuði.
Til að reikna út tekjutengingu er 8 mánaða tímabil skoðað aftur í tímann frá deginum sem sótt er um. Síðustu 2 mánuðirnir eru ekki teknir með í reikninginn.
Tekjutengdar atvinnuleysisbætur sjálfstætt starfandi einstaklinga eru 70% af meðaltali heildarlauna og skal miða við tekjuárið á undan því ári sem umsækjandi varð atvinnulaus.
Frítekjumark
Frítekjumark segir til um hvað má hafa í tekjur á mánuði áður en atvinnuleysisbætur skerðast.
89.817 krónur er frítekjumark atvinnuleysisbóta.
Atvinnuleysisbætur skerðast um helming þeirra tekna sem fara yfir frítekjumarkið.
Dæmi 1
Einstaklingur er með 100.000 krónur í tekjur fyrir skatt. Útreikningurinn er þá svona:
364.895 krónur sem eru 100% óskertar bætur, plús 100.000 krónur er samtals 464.895 krónur.
364.895 krónur + frítekjumark, 89.817 krónur, er samtals 454.712 krónur.
464.895 krónur – 454.712 er samtals 10.183 krónur. Helmingur af þeirri upphæð er 5.091krónur. Skerðing á bótum er þá 5.091 krónur.
Dæmi 2
Einstaklingur er með tilfallandi tekjur upp á 113.458 krónur.
113.458 krónur - 89.817 krónur, sem er frítekjumark, er samtals 23.641 krónur.
Skerðing er þá 23.641 krónur deilt með tveimur sem er 11.820 krónur.
Desemberuppbót
Áætlað er að greiða út desemberuppbót 15. desember næstkomandi.
Upphæð
Hámarksupphæð er 104.955 krónur. Uppbótin er aldrei lægri en 26.239 krónur.
Greiddur er skattur af desemberuppbót.
Skilyrði
Staðfesta atvinnuleit milli 20. nóvember og 3. desember á árinu 2024.
Vera tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar í nóvembermánuði.
Til að eiga rétt á fullri desemberuppbót þarf atvinnuleitandi að hafa verið skráður atvinnulaus í 10 mánuði á árinu 2024 eða meira og eiga fullan bótarétt.
Atvinnuleitandi sem á ekki fullan bótarétt og hefur verið skráður atvinnulaus í 10 mánuði eða meira fær hlutfallslega uppbót í samræmi við rétt sinn til atvinnuleysisbóta.
Atvinnuleitandi sem hefur verið skráður skemur en 10 mánuði atvinnulaus fær hlutfallslega desemberuppbót miðað við fjölda mánaða sem hann hefur verið á skrá og í samræmi við bótarétt sinn.
Skemur en 10 mánuði á skrá:
Ef þú hefur verið 4 mánuði á skrá og átt 100% bótarétt þá átt þú rétt til 40% desemberuppbót eða 41.982 kr.
Ef þú hefur verið 6 mánuði á skrá og átt 50% bótarétt þá átt þú rétt til 30% desemberuppbótar eða 31.486 kr.
Persónuafsláttur
68.691 krónur er upphæð persónuafsláttar árið 2025. Persónuafslátt er hægt að nota til lækka tekjuskatt af launum og lífeyri. Ef þú vilt breyta nýtingu persónuafsláttar getur þú haft samband við spjalllmennið Ask.
Ofgreiddar atvinnuleysisbætur
Fái einstaklingur of háar atvinnuleysibætur greiddar þarf að endurgreiða þær til Atvinnutryggingasjóðs. Yfirleitt er orsökin sú að tekjur voru hærri en reiknað var með í umsókn eða í skráðum upplýsingum á Mínum síðum. Tilkynna þarf allar tekjur á Mínum síðum Vinnumálastofnunnar.
Ef krafan er ekki greidd 30 dögum eftir að innheimtubréf hefur verið sent og ekki er samið um kröfuna er greiðsluáskorun birt af stefnuvotti.
Niðurstaða kærð
Ákvarðanir Vinnumálastofnunar um endurkröfu ofgreiddra atvinnuleysisbóta eru aðfararhæfar. Það þýðir að það megi gera aðför til fullnustu kröfu.
Stjórnsýslukæra frestar ekki réttaráhrifum innheimtu nema að því marki að aðför frestast þar til niðurstaða Úrskurðarnefndar velferðarmála liggur fyrir.
Niðurfelling á álagi
15% álag er fellt niður ef einstaklingur færir rök fyrir því að það hafi ekki verið sök viðkomandi að hafa fengið of háar atvinnuleysisbætur.