Aðstaða og heimildir persónuverndarfulltrúa
Tímanleg aðkoma persónuverndarfulltrúa
Tryggja skal að persónuverndarfulltrúinn komi með viðeigandi hætti og tímanlega að öllum málum er tengjast vernd persónuupplýsinga.
Honum skal meðal annars boðið að funda með yfirstjórn reglulega, vera viðstaddur þegar ákvarðanir um aðgerðir vegna vinnslu persónuupplýsinga eru teknar og gefa þarf honum möguleika á að gefa viðeigandi ráð.
Ef ekki er farið að ráðum persónuverndarfulltrúans þarf að skrásetja það sérstaklega.