Í vissum tilvikum er heimilt að ráða til kennslustarfa einstakling sem ekki hefur kennsluréttindi.
Fjallað er um undanþáguheimildir vegna lausráðninga starfsmanna til kennslustarfa sem ekki eru kennarar í 19. gr. laga um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, nr. 95/2019.
Skólastjórnendum ber að sækja um heimild til mennta- og barnamálaráðuneytisins um að lausráða starfsmann til kennslustarfa í eftirfarandi tilvikum og að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, sem nánar er lýst í 19. gr. laga nr. 95/2019:
Ef enginn kennari sækir um auglýst kennslustarf við grunn- eða framhaldsskóla þrátt fyrir endurtekna auglýsingu. Ráðherra getur gefið út heimild til lausráðningar til eins árs í senn að fenginni tillögu undanþágunefndar kennara, sbr. 2 mgr. 19. gr.
Ef hvorki skólastjórnandi né að minnsta kosti tveir skólanefndarmenn mæla með ráðningu kennara sem sótti um kennslustarf. Ráðherra getur veitt heimild til að lausráða annan einstakling sem ekki er með leyfisbréf í stöðu leiðbeinanda til eins árs, sbr. 7. mgr. 19. gr.
Með umsókn skulu fylgja eftirtalin gögn:
Afrit auglýsingar og upplýsingar um hvar og hvenær starfið var auglýst og með hvaða hætti auglýsing var endurtekin.
Gögn um menntun, kennsluferil og starfsreynslu umsækjanda sem óskað er heimildar til að ráða ásamt umsögnum um starfshæfni.
Fyrirhugað ráðningartímabil.
Ítarlegur rökstuðningur skólastjóra og skólanefndar ef umsækjandi án réttinda er tekinn fram yfir umsækjanda með leyfisbréf.
Ferli umsóknar
Mennta- og barnamálaráðuneytið kannar hvort fullnægjandi gögn séu til staðar og kallar eftir frekari gögnum eftir því sem við á.
Þegar öll gögn hafa borist sendir ráðuneytið málið til undanþágunefndar kennara sem gerir tillögu að afgreiðslu umsóknar til ráðuneytisins.
Ráðuneytið fer yfir gögn og tillögur undanþágunefndar, tekur endanlega afstöðu í málinu og tilkynnir skólastjórnanda.
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur eftirlit með framkvæmd laga nr. 95/2019 og er heimilt á grundvelli þeirra að kalla eftir upplýsingum frá skólum um ráðningu í kennslustörf og er skólum skylt að veita þær upplýsingar.
Þjónustuaðili
Mennta- og barnamálaráðuneytið