Stofnun hlutafélags, hf.
Hlutafélög eru skráð í fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra. Skila þarf inn stofngögnum til fyrirtækjaskrár og greiða skráningargjald.
Afgreiðslutími umsóknar um skráningu hlutafélags er almennt um tíu til tólf virkir dagar frá því að gögn eru lögð inn til fyrirtækjaskrár.
Stofngögn sem leggja þarf inn til skráningar eru auk tilkynningareyðublaðs, stofnsamningur, stofnfundargerð, samþykktir og tilkynning um raunverulega eigendur.
Þjónustuaðili
Skatturinn