Starfsleyfi heilbrigðiseftirlits
Einstaklingar sem reka starfsleyfisskylda starfsemi samkvæmt lögum og reglugerðum þar um varðandi hollustuhætti, mengunarvarnir og matvæli þurfa að hafa gilt starfsleyfi.
Heilbrigðiseftirlit gefur út starfsleyfi fyrir eftirfarandi atvinnurekstur:
Atvinnurekstur í framleiðslu eða dreifingu matvæla samkvæmt lögum um matvæli
Til dæmis: matvöruverslanir, bakarí og veitingastaðir
Atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun, sbr. lista í viðauka í reglugerð
Til dæmis: bensínstöðvar, bílaverkstæði, virkjanir, fiskvinnslur og svínabú
Atvinnurekstur og stofnanir sem veita almenningi þjónustu samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir
Til dæmis: sundlaugar, skólar og heilbrigðisþjónusta sbr. fylgiskjal 1 í reglugerð
Rekstraraðila ber að sækja um starfsleyfi áður en starfsemi hefst.
Þegar rekstraraðili hefur sent inn umsókn tekur heilbrigðisfulltrúi hana til meðferðar. Uppfylli rekstraraðili skilyrði er umsóknin tekin til afgreiðslu, að öðrum kosti er umsækjanda leiðbeint um það sem upp á vantar.
Ef sótt er um fyrir hönd fyrirtækis eða lögaðila þarf viðkomandi umsækjandi að hafa umboð frá lögaðila. Leiðbeiningar fyrir umboð.
Þjónustuaðili
Reykjavíkurborg