Þjónustuaðili
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri samskipta
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
17.04.2025
Umsóknarfrestur
30.04.2025
Verkefnastjóri samskipta
Ert þú að leita að fjölbreyttu og skemmtilegu starfi innan stjórnsýslunnar?
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið leitar að verkefnastjóra samskipta til sinna fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum á skrifstofu ráðuneytisstjóra.
Um er að ræða áhugaverð og krefjandi verkefni í lifandi starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á teymisvinnu, nýsköpun, stafræna þróun og árangursmælingar í nýju skipuriti ráðuneytisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Eðli starfs verkefnastjóra er að tryggja faglega ásýnd ráðuneytisins gagnvart almenningi, Alþingi og hagaðilum. Framkvæma hagsmunaðilagreiningar, efla samskiptastjórnun og tryggja tímanlega og ábyrga upplýsingamiðlun gagnvart umræðu og þróun málaflokka ráðuneytisins bæði á vettvangi ráðuneytisins og utan þess.
Verkefnastjóri ber ábyrgð á gerð samskiptastefnu og samskiptastjórnun í ráðuneytinu, styður stjórnendur og starfsfólk gagnvart samskiptum í kringum málaflokka og störf ráðuneytisins, yfirfer faglegt efni og skrifar greinagerðir og fréttir þegar við á. Verkefnastóri samskipta kemur að kynningarmálum og almannatengslum, vinnur náið með yfirstjórn og upplýsingafulltrúa með ráðgjöf og stuðningi.
Hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi
Góð stafræn hæfni og reynsla af notkun samfélagsmiðla
Reynsla af upplýsingamiðlun, þar með talið samskipti við fjölmiðla
Góð ritfærni
Geta til að starfa vel í liðsheild og teymisvinnu
Mjög góðir samstarfs- og miðlunarhæfileikar
Mjög góð samskiptafærni
Mjög gott vald á íslensku og ensku auk færni til að tjá sig í ræðu og riti
Mikið frumkvæði og sjálfstæði í starfi er mikilvægt
Lausnamiðuð hugsun og geta til vinna undir álagi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá, prófskírteini og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í 6 mánuði, sbr. reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2025
Nánari upplýsingar veitir
Jóhanna Ella Jónsdóttir, johanna.jonsdottir@urn.is
Þjónustuaðili
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri samskipta
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
17.04.2025
Umsóknarfrestur
30.04.2025