
Þjónustuaðili
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Nótnavörður Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
16.04.2025
Umsóknarfrestur
12.05.2025
Nótnavörður Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Sinfóníuhljómsveit Íslands leitar að ábyrgum og vandvirkum nótnaverði til að ganga til liðs við hljómsveitina. Um er að ræða fjölbreytt og mikilvægt starf þar sem þjónustulund, fagmennska, og þekking á hljómsveitartónlist fara saman.
Sótt er um starfið hér: https://www.hagvangur.is/jobs/notnavordur-sinfoniuhljomsveit-islands/
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með pöntun, kaupum, leigu og skilum á nótum fyrir hljómsveitina.
Viðhald og skipulagning nótnasafns hljómsveitarinnar.
Samskipti og samningar við innlenda og erlenda rétthafa vegna leigu á nótum.
Móttaka og vinnsla rafrænna nótna frá tónskáldum, útsetjurum eða öðrum rétthöfum .
Þjónusta við hljóðfæraleikara, hljómsveitarstjóra, tæknifólk og aðra samstarfsaðila.
Stuðningur við undirbúning hæfnisprófa og prufuspila.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Rík samskiptahæfni og þjónustulund.
Þekking á skráningu gagna og nótnaforlögum.
Góð þekking á hljómsveitartónlist, færni í nótnalestri og greiningu villna í nótum.
Þekking á uppbyggingu sinfóníuhljómsveita og hljóðfærum þeirra.
Gott tæknilæsi og hæfni í notkun rafrænna verkfæra, s.s. OPAS og skönnunarkerfa.
Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni.
Góð kunnátta í ensku, bæði í ræðu og riti.
Tónlistarlegur skilningur á algengustu nótnatungumálum, svo sem þýsku, frönsku og/eða ítölsku er kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.
Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur verið leiðandi afl í íslensku tónlistarlífi í rúm 75 ár og hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum. Hljómsveitin hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Hún heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum, en á einnig samstarf við listafólk úr öðrum greinum tónlistar. Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús, er heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Starfsmannafjöldi SÍ er um 100 manns. Nánari upplýsingar á sinfonia.is.
Ráðið verður í starfið frá 1. ágúst 2025. Um er að ræða fullt starf. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Nánari upplýsingar veitir Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is
Umsóknir með ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á hagvangur.is, https://www.hagvangur.is/jobs/notnavordur-sinfoniuhljomsveit-islands/
Umsóknarfrestur til 12. maí.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.05.2025
Nánari upplýsingar veitir
Dagrún Hálfdánardóttir, dagrun.halfdanardottir@sinfonia.is

Þjónustuaðili
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Nótnavörður Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
16.04.2025
Umsóknarfrestur
12.05.2025