Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Vestur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Ljósmóðir - Kvennadeild HVE á Akranesi

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

22.11.2024

Umsóknarfrestur

02.12.2024

Ljósmóðir - Kvennadeild HVE á Akranesi

Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) óskar eftir að ráða í stöðu ljósmóður á Kvennadeild HVE á Akranesi. Um er að ræða 60 - 100% starfshlutfall í vaktavinnu, unnið er á öllum vöktum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Umönnun kvenna í fæðingu og í sængurlegu ásamt því að sinna konum á dagdeild á meðgöngu og eftir fæðingu. Á deildinni er konum einnig sinnt eftir kvensjúkdómaaðgerðir. Bakvaktir eru á skurðstofu allann sólarhringinn, svæfingalæknir og sérfræðingur í fæðingar- og kvensjúkdómum er á vakt allan sólarhringinn. Deildin er heimilisleg og eru fæðingar um 250-300 á ári. Spennandi starf og miklir möguleikar á að vinna sjálfstætt við að sinna konum í öllu barneignarferlinu.

Hæfniskröfur

Íslenskt ljósmæðra og hjúkrunarleyfi. Góð samskipta- og samvinnuhæfni, frumkvæði, skipulagshæfni og geta til að vinna sjálfstætt. Góð íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.

Sækja skal um starfið á hve.is eða starfatorg.is. Starfsleyfi, staðfestingu á bólusetningum ásamt upplýsingar um nám og fyrri störfu skulu einnig fylgja umsókn. Ef viðkomandi býr utan Akraness er möguleiki á afnotum af herbergi í starfsmannabústað í vinnutörn.

Starfshlutfall er 60-100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.12.2024

Nánari upplýsingar veitir

Hrafnhildur Ólafsdóttir, hrafnhildur.olafsdottir@hve.is

Sími: 432-1000

Hulda Gestsdóttir, hulda.gestsdottir@hve.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Vestur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Ljósmóðir - Kvennadeild HVE á Akranesi

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

22.11.2024

Umsóknarfrestur

02.12.2024