Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
HSN Akureyri. Deildarstjóri meðgöngu- og ungbarnaverndar
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
22.11.2024
Umsóknarfrestur
02.12.2024
HSN Akureyri. Deildarstjóri meðgöngu- og ungbarnaverndar
Laus er til umsóknar staða deildarstjóra meðgöngu- og ungbarnaverndar við Heilsugæsluna á Akureyri. Um er að ræða 80% starfshlutfall og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem allra fyrst. Næsti yfirmaður er yfirhjúkrunarfræðingur svæðis.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipuleggur þjónustu sem snýr að meðgöngu- og ungbarnavernd
Fagleg ábyrgð á þjónustunni í samráði við fagstjóra meðgöngu- og ungbarnaverndar HSN
Ber ábyrgð á daglegum rekstri, mönnun og góðum starfsanda á deildinni
Stefnumótun og innleiðingar teymisvinnu
Fjölbreytt verkefni sem hjúkrunarfræðingur eða ljósmóðir á deildinni
Hæfniskröfur
Fullgilt íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur og/eða ljósmóðir
Haldbær reynsla af meðgöngu- og /eða ungbarnavernd
Framúrskarandi samskiptahæfni
Skýr sýn og farsæl reynsla af stjórnun
Góð skipulagshæfni og lausnarmiðun
Hæfni til að leiða fólk til góðra verka
Faglegur metnaður í starfi og rík árangursþörf
Góð íslensku- og enskukunnátta nauðsynleg
Hreint sakavottorð, ökuleyfi og gott orðspor
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Tekið er á móti umsóknum á starfatorg.is með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið. Umsókn gildir í sex mánuði eftir að ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn fylgi ferilskrá á íslensku. Með umsókn fylgi einnig afrit af starfsleyfi og prófskírteinum.
Gildi HSN eru Fagmennska - Samvinna - Virðing
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 02.12.2024
Nánari upplýsingar veitir
Ingibjörg Lára Símonardóttir, inga.lara.simonardottir@hsn.is
Sími: 432 4600
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
HSN Akureyri. Deildarstjóri meðgöngu- og ungbarnaverndar
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
22.11.2024
Umsóknarfrestur
02.12.2024