Þjónustuaðili
Vegagerðin
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í umsjónardeild á Suðursvæði
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.11.2024
Umsóknarfrestur
09.12.2024
Sérfræðingur í umsjónardeild á Suðursvæði
Vegagerðin auglýsir eftir öflugum einstaklingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum á umsjónardeild Suðursvæðis. Suðursvæði Vegagerðarinnar nær frá Gígjukvísl á Skeiðarársandi að botni Hvalfjarðar og upp á miðhálendi. Svæðismiðstöð Suðursvæðis er á Selfossi en sérfræðingur getur einnig haft starfsstöð í Garðabæ.
Umsjónardeild hefur umsjón og eftirlit með framkvæmdum á Suðursvæði. Í samráði við mannvirkjasvið sinnir umsjónardeild nýbyggingum og viðhaldi bundinna slitlaga, styrkingum og endurbótum vega, ásamt efnisvinnslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna við áætlanir og undirbúning framkvæmda í nýframkvæmdum og viðhaldi
Hafa umsjón/eftirlit með framkvæmdum bæði tæknilega og fjárhagslegu uppgjöri
Vinna við undirbúning verka, halda utan um magnuppgjör, áætlanagerð, kostnaðareftirlit, gæðaeftirlit og útboðslýsingar
Sjá um verkfundi og skráningar í gagnabanka að loknum framkvæmdum
Önnur verkefni, sem falla undir starfsvið umsjónardeildar
Hæfniskröfur
Verkfræðingur, tæknifræðingur eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
Þekking og reynsla af nýframkvæmdum og viðhaldi vegamannvirkja æskileg
Reynsla af verkefnastjórnun æskileg
Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur metnaður
Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Góð íslensku- og enskukunnátta
Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir hverju sinni.
Góð öryggisvitund
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með fjölbreytta verkefnaflóru.Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.12.2024
Nánari upplýsingar veitir
Aron Bjarnason, aron.bjarnason@vegagerdin.is
Sími: 860 5611
Þjónustuaðili
Vegagerðin
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í umsjónardeild á Suðursvæði
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.11.2024
Umsóknarfrestur
09.12.2024