Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Iðjuþjálfi við Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
75%
Starf skráð
21.11.2024
Umsóknarfrestur
02.12.2024
Iðjuþjálfi við Sjúkrahúsið á Akureyri
Laus er til umsóknar 75% staða iðjuþjálfa við Sjúkrahúsið á Akureyri, staðsett á Kristnesi. Staðan er laus frá 1. desember nk. eða eftir samkomulagi.
Við Sjúkrahúsið á Akureyri fer iðjuþjálfun fram á tveimur starfsstöðvum, í aðalbyggingu fer fram iðjuþjálfun tengd bráðadeildum og við Kristnesspítala við endurhæfinga og öldrunarlækningadeild. Helstu verkefni iðjuþjálfa eru mat og þjálfun í athöfnum daglegs lífs, fjölskyldufundir, mat á þörf fyrir hjálpartæki og útvegun þeirra, heimilisathuganir fyrir útskrift og eftirfylgd. Iðjuþjálfi heldur fræðslu fyrir starfsfólk sjúkrahússins og sinnir beiðnum m.a. um mat og ráðgjöf á vinnuaðstöðu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Staðan er fjölbreytt og gefur tækifæri til að takast á við margbreytileg og spennandi verkefni ásamt því að hafa áhrif á áframhaldandi uppbyggingu iðjuþjálfunar. Iðjuþjálfar eru ekki ráðnir á ákveðna starfsstöð og sinna, ef þörf þykir, verkefnum á Kristnesi og á bráðadeildum sjúkrahússins. Í gildi er starfssamningur milli SAk og Háskólans á Akureyri um kennslu, rannsóknir og endurmenntun. Verkleg kennsla nema í iðjuþjálfun fer fram á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Hæfniskröfur
BSc. próf í iðjuþjálfun og löggildingu til þess að starfa sem slíkur
Umsækjendur þurfa að búa yfir góðri hæfni til mannlegra samskipta og hafa hæfileika til að starfa sjálfstætt
Reynsla af starfi í endurhæfingu og umsýslu hjálpartækja er kostur
Víðtæk þekking og reynsla af ýmiskonar endurhæfingarúrræðum og þjónustu er kostur
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Iðjuþjálfafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 75%
Umsóknarfrestur er til og með 02.12.2024
Nánari upplýsingar veitir
Kristín Margrét Gylfadóttir, kmg0918@sak.is
Sími: 463-0100
Eygló Brynja Björnsdóttir, ebb0508@sak.is
Sími: 463-0100
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Iðjuþjálfi við Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
75%
Starf skráð
21.11.2024
Umsóknarfrestur
02.12.2024