Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingar á vöknun og gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
21.11.2024
Umsóknarfrestur
12.12.2024
Hjúkrunarfræðingar á vöknun og gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri
Ertu góður liðsmaður og langar þig að starfa í fjölbreyttu og lærdómsríku starfsumhverfi?
Við leitum að hjúkrunarfræðingum í okkar góða lið á vöknun og gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri. Hér eru mikil tækifæri til að þróa með sér mikla faglega þekkingu og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum.
Hentar bæði fyrir hjúkrunarfræðinga sem vilja breyta til í starfi og takast á við nýjar áskoranir í fjölbreyttu og lærdómsríku umhverfi og ný útskrifaða hjúkrunarfræðinga sem vilja kynnast hjúkrun bráðveikra einstaklinga. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum.
Gjörgæsludeild er 5 rúma gjörgæslu- og hágæsludeild og tekur til meðferðar sjúklinga frá öllum deildum sjúkrahússins sem þurfa á gjörgæslumeðferð að halda. Deildinni tilheyra einnig vöknun með rými fyrir 8 sjúklinga og móttaka skurðstofu, auk blóðskilunareiningar sem er dagdeild og starfar að jafnaði 6 daga vikunnar.
Næsti yfirmaður er Brynja Dröfn Tryggvadóttir, deildarstjóri gjörgæsludeildar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar
Fjölbreytt og gefandi verkefni í góðum starfsanda þar sem boðið er upp á góða handleiðslu. Lögð er áhersla á hæfileika í samskiptum og samvinnu
Hæfniskröfur
Umsækjandi skal hafa lokið hjúkrunarfræðinámi frá viðurkenndri menntastofnun
Gilt íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur
Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.12.2024
Nánari upplýsingar veitir
Brynja Dröfn Tryggvadóttir, brynjadr@sak.is
Sími: 463-0100
Helga Kristín Jónsdóttir, hkj0716@sak.is
Sími: 463-0100
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingar á vöknun og gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
21.11.2024
Umsóknarfrestur
12.12.2024