Skil á lyklum til íbúa
Þess er óskað að eigendur nálgist lykla að eignum frá og með miðvikudeginum 17. apríl, til og með sunnudagsins 21. apríl.
Opið verður milli klukkan 9-20 miðvikudag til föstudags og frá klukkan 9-17 laugardag og sunnudag. Afhending lykla fer fram í Kvikunni.
Þeir eigendur sem komast ekki á auglýstum tíma geta haft samband við þjónustuver Grindavíkurbæjar í síma 420-1100.
Komist eigendur ekki sjálfir að sækja lykla þarf að framvísa skriflegu umboði til þess að geta sótt lykla fyrir þeirra hönd.
Í kjölfar verðmætabjörgunaraðgerða á vegum Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra undanfarnar vikur hefur farið fram vinna við lagfæringar á stofnlögnum hitaveitukerfis bæjarins og því er unnt að auka þrýsting og rennsli á heitu vatni til bæjarins.
Í framhaldi fóru pípulagningamenn á vegum Almannavarnadeildar yfir hitaveitugrind fasteignanna. Þrýstijafnarar voru stilltir og jafnvægi komið á heitavatnsnotkunina. Eftir að hitaveitugrindin var stillt fór óháður pípulagningameistari á vegum Félags Pípulagningarmeistara yfir grindina og staðfesti að hún sé stillt eins og best verður á kosið miðað við aðstæður. Að úttekt lokinni fellur niður eftirlit Almannavarnadeildar með fasteigninni. Komi til rýmingar vegna frekari jarðhræringa eða eldgosa mun slíkt eftirlit haldast hjá eigendum fasteigna þar sem eftirlit Almannavarnadeildar var bundið við verðmætabjörgunaraðgerðir þar sem alvarlegum frostskemmdum á fasteignum var varnað í ársbyrjun 2024.
Við afhendingu eigna munu pípulagningamenn á vegum Almannavarnadeildar ekki opna fyrir heitt neysluvatn í lagnagrind fasteignarinnar. Ákvörðun um að opna fyrir heitt neysluvatn inn á fasteignina er á ábyrgð fasteignareiganda. Ekki er mælt með því að opnað sé fyrir neysluvatnsloka á meðan ekki er dvalið í húsi. Ef hleypa á heitu neysluvatni inn á fasteignina er mælt með því að húseigandi fái pípulagningarmann til að ástandskanna lagnirnar til þess að koma í veg fyrir og lágmarka líkur á tjóni innanhúss.
Rétt er að beina fyrirspurnum tengt heitu vatni til HS Veitna. Fyrirspurnum vegna neysluvatns (kalt vatn) er rétt að beina til Grindavíkurbæjar.
Athygli er vakin á Félagi pípulagningameistara, sími 591-0100 eða heimasíða www.piparinn.is, ef þörf er á þjónustu pípulagningamanna