Fara beint í efnið

Skil á framboðslistum vegna alþingiskosninga

Framboð geta slegið inn framboðslista sína hér og skilað til landskjörstjórnar rafrænt.

Athugið að klára þarf allt ferlið í einu. Hafið því öll gögn tilbúin áður en hafist er handa.

  • Kennitala frambjóðenda eftir réttri röð þeirra á lista er slegin inn og þá birtist nafn og lögheimili viðkomandi sjálfkrafa.

  • Tilgreina þarf stöðu/starfsheiti frambjóðanda.

  • Ef óskað er eftir öðrum rithætti en fram kemur í þjóðskrá þarf að taka það sérstaklega fram.

Við lok umsóknarinnar er gögnum sem þarf að skila með framboðinu hlaðið upp.

Gögn sem þarf að skila með framboði:

  • Tilkynning um framboð, þar sem fram koma upplýsingar um heiti stjórnmálasamtakanna og listabókstaf þeirra.

  • Framboðslisti viðkomandi stjórnmálasamtaka, ásamt undirrituðu samþykki frambjóðenda fyrir því að fara í framboð. Best er ef þetta er rafrænt undirritað í einu skjali með fullgildri rafrænni undirritun.

  • Upplýsingar um umboðsmenn listans, ásamt samþykki þeirra.

  • Meðmæli frá kjósendum í hlutaðeigandi kjördæmi.

    • Athugið að hægt er að taka skýrslu út úr meðmælakerfinu.

Ef öll gögn eru rafræn nægir að skila inn framboðum með rafrænum hætti.

Ef frambjóðandi eða umboðsmaður hefur skrifað undir á pappír þá þarf að koma frumritinu til landskjörstjórnar.

Um rithátt nafna:

Nöfn frambjóðenda skulu rituð að lágmarki með einu eiginnafni og kenninafni eins og þau birtast í þjóðskrá. Óski frambjóðandi eftir annarri ritun nafns á framboðslistann er honum það heimilt, enda séu þau nöfn skráð í þjóðskrá. Frambjóðanda er þó heimilt að rita eiginnafn eða eiginnöfn sín á annan veg en skráð er í þjóðskrá ef hann er kunnur af þeirri notkun eiginnafns eða eiginnafna.

Hafi frambjóðandi fleiri en eitt eiginnafn, millinafn eða kenninafn er honum heimilt að stytta þau með því að nota upphafsstaf eða styttri rithátt, svo framarlega sem uppfyllt sé skilyrði um lágmark eitt eiginafn og kenninafn eins og þau birtast þjóðskrá.