Fara beint í efnið

Tilkynning um sjálfseignarstofnun í atvinnurekstri (ses.)

Sjálfseignarstofnanir í atvinnurekstri eru skráðar í fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra. Skila þarf inn stofngögnum og greiða skráningargjald.

Afgreiðslutími umsóknar er almennt um tíu til tólf virkir dagar frá því að gögn eru lögð inn til fyrirtækjaskrár.

Stofngögn sem leggja þarf inn til skráningar auk tilkynningareyðublaðsins eru: stofnfundargerð, samþykktir (skipulagsskrá) og tilkynning um raunverulega eigendur.

Tilkynningareyðublað skal undirritað af öllum stjórnarmönnum og skulu undirskriftir staðfestar af tveimur vottum, lögmanni, eða löggiltum endurskoðanda.

Tilkynning um sjálfseignarstofnun í atvinnurekstri

Þjónustuaðili

Skatt­urinn