Sýslumannaráð
Samkvæmt 6. gr. laga nr. 50/2014 um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði tilnefna sýslumenn árlega úr sínum hópi nefnd þriggja manna er hafi það hlutverk:
að vinna með ráðuneytinu að stefnumótun fyrir sýslumannsembættin í heild og gera tillögur um hvað eina sem getur orðið til úrbóta í störfum sýslumanna eða löggjöf sem um verkefni þeirra gildir,
að vinna að sameiginlegum verkefnum sýslumanna, svo sem útgáfu ársskýrslu fyrir embættin í heild, að vera til ráðgjafar um þróun starfs- og upplýsingakerfa embættanna, að annast sameiginlega vefsíðu embættanna og að stuðla að símenntun og þjálfun starfsmanna þeirra.
Nefndinni er heimilt að fela sýslumanni framkvæmd einstakra verkefna undir yfirstjórn hennar.
Nefndin sem nefnd er sýslumannaráð er samkvæmt ákvörðun fundar sýslumanna 22. september 2023, skipuð sem hér segir:
Kristín Þórðardóttir - sýslumaður á Suðurlandi og settur sýslumaður í Vestmannaeyjum
Birna Ágústsdóttir - sýslumaður á Norðurlandi vestra
Sigríður Kristinsdóttir - sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu
Á fundi sýslumannaráðs 22. september 2023 var skipun ráðsins ákveðin sem hér segir:
Formaður: Kristín Þórðardóttir
Meðstjórnandi: Birna Ágústsdóttir
Meðstjórnandi: Sigríður Kristinsdóttir
Netfang sýslumannaráðs er syslumannarad@syslumenn.is