Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Við auglýsum eftir liðsauka í gerð stuðningsefnis við hæfniviðmið skólaíþrótta, stærðfræði, samfélagsgreina og lykilhæfni í Aðalnámskrá grunnskóla

3. mars 2025

Um tímabundið og afmarkað verkefni er að ræða sem varað gæti í um átta vikur, á tímabilinu frá lok mars – lok maí 2025. Að þessu sinni leitum við að liðsauka í gerð stuðningsefnis/námsmarkmiða fyrir skólaíþróttir, stærðfræði, samfélagsgreinar og lykilhæfni.

aðalnámskrá fb size

Fyrir skólaíþróttir óskum við eftir fólki sem hefur jafnframt góða þekkingu á sundi. Verkefnahópar verða settir saman um hverja námsgrein.

Við leitum að fólki sem hefur góða þekkingu á aðalnámskrá grunnskóla, brennur fyrir hæfnimiðuðu námi og kennslu, hefur mjög góða innsýn í skipulagningu náms og kennslu einhverra þeirra námsgreina sem um ræðir, starfar innan skólasamfélagsins, hefur þekkingu og kennslureynslu á yngsta stigi, miðstigi og/eða unglingastigi grunnskólans, með framúrskarandi samskiptahæfni og á gott með að vinna í hópi.

Verkefnið er án staðsetningar og hvetjum við fólk alls staðar af að landinu til að óska eftir þátttöku. Leitast verður við að velja í verkefnahópa fólk með sem breiðasta þekkingu, reynslu og aðkomu að viðkomandi námsgrein.

Greitt er fyrir verkefnið samkvæmt taxta Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.

Umsækjendur fylli vinsamlegast út form í tengli hér.

Umsóknum er hægt að skila inn til miðnættis miðvikudaginn 12. mars 2025.

Fyrirspurnir vegna verkefnisins sendist á audurb@midstodmenntunar.is.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280