Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Úrslit Ljóðaflóðs

28. janúar 2025

Vinátta og sterkar tilfinningar voru áberandi í ljóðum grunnskólanema í ljóðasamkeppninni Ljóðaflóði sem við stóðum fyrir í tilefni af degi íslenskrar tungu. Nemendur sömdu líka ljóð um náttúruna, skólann, jólin, drauga, ofbeldi, frið o.fl. Alls bárust 128 ljóð frá 17 skólum víðs vegar að af landinu, 68 ljóð frá unglingastigi, 39 frá miðstigi og 21 ljóð frá yngsta stigi.

ljóðaflóð contentful

Dómnefnd valdi eitt verðlaunaljóð á hverju stigi og fengu vinningshafar bókaverðlaun og viðurkenningarskjal. Auk þess gefst nemendum tækifæri til að flytja verðlaunaljóð sín á KrakkaRÚV. Vinningshafarnir eru:

Thora 1

Þóra Egilsdóttir, nemandi í 4. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar, fyrirljóðið Vinir. Í umsögn dómnefndar segir: Í þessu fallega og hnitmiðaða ljóði koma fram einföld og skýr skilaboð um vináttu. Skemmtileg notkun á rími og síðustu tvær ljóðlínurnar ramma inn merkingu ljóðsins á áhrifamikinn hátt.

Önnur ljóð sem voru á meðal þeirra bestu á yngsta stigi má sjá hér.

BrynhildurEyja 1

Brynhildur Eyja Jóhannesdóttir, nemandi í 5. bekk Grunnskóla Borgarfjarðar, fyrir ljóðið Tilfinningaklessa. Í umsögn dómnefndar segir: Skemmtilegt ljóð sem lýsir tilfinningaróti á beinskeittan hátt. Flottur stígandi er í ljóðinu og rímorðin gefa því húmorískan blæ.

Önnur ljóð sem voru á meðal þeirra bestu á miðstigi má sjá hér. Einnig fengum við sent skemmtilegt rapp við eitt ljóðið sem heyra má hér í flutningi Sævars Hjalta Þorsteinssonar.

IndaMary 72dpi

Inda Marý Kristjánsdóttir, nemandi í 10. Bekk Barnaskóla Vestmannaeyja, fyrir ljóð sitt Þú grætur ekki eins og ég. Í umsögn dómnefndar segir: Tilfinningaþrungi og einlægni koma vel fram í þessu fallega ljóði ásamt áhrifamiklu myndmáli.

Önnur ljóð sem voru á meðal þeirra bestu á unglingastigi má sjá hér.


Verðlaunaljóð í ljóðasamkeppni grunnskólanema, Ljóðaflóði 2024:

Vinir

Vinur er góður

en ekki óður.

Vinur er blíður

og líka svo fríður.

Góður vinur er vinur,

sama hvað á dynur.

Þóra Egilsdóttir, verðlaunahafi á yngsta stigi

Tilfinningaklessa

Gleði, reiði, kvíði og spenna

það stundum gerist að þau saman renna.

Þá inni í þér fer allt í klessu

og svo breytist þú í skessu.

Þú kastar dóti í mömmu

og öskrar á ömmu.

Ferð í fýlu út í pabba

bara fyrir að labba.

Svo ferðu inn í herbergi

og kýlir vegg úr bergi.

Þegar þú ert búin að vera þar lengi

og búin að hringja í þitt eigið gengi.

Þá ferðu fram

biðst fyrirgefningar og færð smá skamm.

Þá líður þér samt vel

þú ert nú ekki í hel.

Brynhildur Eyja Jóhannesdóttir, verðlaunahafi á miðstigi

Þú grætur ekki eins og ég

þegar tunglið lýsir upp næturhimininn

og sólin er löngu búin að fela sig

geri ég mig tilbúna í háttinn

og breiði sængina mína yfir mig

um leið skríða minningarnar um okkur út um augun á mér og leka niður kinnar mínar

ég minni mig þá á að þú grætur ekki yfir þeim þótt að þetta séu líka minningarnar þínar

Inda Marý Kristjánsdóttir, verðlaunahafi á unglingastigi


Miðstöð menntunar óskar vinningshöfum hjartanlega til hamingju með frábæran árangur og þakkar grunnskólanemum og kennurum fyrir þátttökuna. Við vonum að ljóðasamkeppnin Ljóðaflóð muni hvetja nemendur til að virkja sköpunarmátt sinn og semja ljóð um allt það sem brennur á þeim hverju sinni.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280