Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Tækifæri gervigreindar í menntun

18. desember 2024

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu gegnir lykilhlutverki sem bakhjarl íslensks skólastarfs og leggur áherslu á þjónustumiðaða nálgun og aukinn stuðning við skólasamfélagið. Með nýtingu stafrænna lausna er raunhæfara að ná því markmiði og stuðla að auknum gæðum í menntun, samræmingu og miðlun þekkingar á þessu sviði.

páll ásgeir

Nýlega lögðum við hjá Miðstöð menntunar í vegferð, í nánu samstarfi við kennara, um að innleiða gervigreind í íslenskt skólastarf á öruggan og skilvirkan hátt. Fyrsta verkfærið sem verður kynnt kennurum nefnist Björgin. Björgin er hönnuð til að styðja kennara við val á kennsluefni með það að markmiði að tryggja að kennarar hafi yfirlit yfir það námsefni sem er í boði og, það sem er ekki síður mikilvægt, að hver nemandi fái námsefni við hæfi. Þetta frumkvæði hefur vakið athygli alþjóðlegra aðila, þar á meðal þekktra fyrirtækja, sem hafa lýst áhuga á að styðja verkefnið. 

Björgin verður í fyrstu prófuð af öflugum hópi kennara sem bauð sig fram í verkefnið og mun veita endurgjöf til að styðja við áframhaldandi þróun. Það er mikilvægt að lausnin taki mið af raunverulegum þörfum kennara og veiti þeim stuðning í daglegu starfi. Með því að eiga samráð við kennara frá upphafi og tryggja að allir hafi tækifæri til að miðla sjónarmiðum sínum, greina áskoranir og koma með tillögur að nýjungum, verður lausnin sterkari og betur aðlöguð að þörfum kennara. 

Við hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu lítum á gervigreind sem mikilvægt tækifæri til að styðja kennara í daglegu starfi sínu, auka skilvirkni í menntakerfinu og styðja við símenntun kennara. Við munum einnig að sjálfsögðu sjá til þess allar lausnir sem nýta gervigreind standist gildandi lög og reglur og séu innleiddar á ábyrgan hátt. 

Framtíðarmöguleikar fela meðal annars í sér að nýta gervigreind til að sérsníða námsefni að þörfum nemenda, tengja kennslu við markmið aðalnámskrár og styðja kennara í símenntun með lausnum sem veita aðgang að sérsniðnum námskeiðum, leiðsögn og faglegri þróun. Auk þess geta lausnir á sviði gervigreindar stutt kennara við að taka á móti nemendum með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn, sem stuðlar að aukinni aðlögun og fjölbreytni í skólastarfi. 

Gervigreind mun ekki leysa allar áskoranir menntakerfisins, en hún býður upp á öflug tæki sem geta stutt kennara, eflt nám nemenda og skapað betri skilyrði fyrir menntun framtíðarinnar. Með ábyrgri og markvissri innleiðingu, byggðri á þörfum skólasamfélagsins, er hægt að tryggja að tækifæri gervigreindar nýtist sem best til að efla íslenskt skólastarf.  

Að lokum er rétt að geta þess að hagnýting gervigreindar er einungis hluti af þeirri mikilvægu vegferð sem við erum í og ætlað er að styðja við íslenskt skólakerfi á sem bestan hátt. Á næstu misserum munum við til dæmis kynna ýmsar nýjar lausnir í þeim tilgangi. Þar á meðal er Frigg, sem mun veita skólum einfaldan og öruggan aðgang að nauðsynlegum upplýsingum um alla nemendur. Þá er einnig unnið að heildstæðu kerfi fyrir Matsferil sem aflar upplýsinga um stöðu og framvindu nemenda á mörgum sviðum, eins og til dæmis málþroska, lesfimi, stærðfræði og lesskilningi. Þetta kerfi mun styðja við markvissari nálgun í námi og kennslu með því að auðvelda greiningu á styrkleikum og þörfum nemenda. 

-Páll Ásgeir Torfason, stafrænn leiðtogi

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280