Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Námskeið um Menningarmót og fjölbreytt tungumál í skóla- og frístundastarfi fyrir kennara, stjórnendur og starfsfólk

23. janúar 2025

Á hverjum degi ganga börn og ungmenni út um dyrnar heima hjá sér með tungumál í hjartanu, heilanum og í farteskinu. Tungumál eru samofin menningu einstaklinga og geyma tilfinningar, minningar og visku um allt milli himis og jarðar. Hvernig nýtum við þessa tungumála- og menningarauðlind í íslensku skóla- og frístundastarfi? Hvernig opnum við gluggann að íslensku samfélagi og um leið að heiminum sem umkringir okkur, gegnum reynsluheim og tungumál barna og ungs fólks?

Námskeið um Menningarmót

Í tengslum við MEMM verkefnið býður Miðstöð menntunar og skólaþjónustu upp á námskeið bæði sem stað- og fjarnámskeið og stuðning við að þróa skapandi leiðir til að virkja fjölbreytta menningu og tungumál í vinnu með börnum og ungu fólki. Áhersla er lögð á það sem sameinar okkur, viðurkenningu á fjölbreytileikanum sem ríkir í samfélaginu og skapandi tjáningu.

Viðfangsefni sem komið verður inn á:

  • Menningarhugtakið og það að stuðla að menningarhæfni meðal barna og ungmenna

  • Tungumálavitund allra nemenda (það einstaka við tungumál og það sem er sameiginlegt, tungumál sem auðlind).

Hagnýtar leiðir sem verða kynntar:

  • Menningarmót - kennsluferli til að virkja reynsluheima nemenda, stuðla að gagnvirkum skilningi og samkennd

  • Töfrakista tungumálanna. Nýtt námsefni frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Markmið þess er að vekja forvitni og áhuga nemenda á tungumálum og efla tungumálavitund þeirra.

  • Vinna með skapandi sjálfsmyndir

Hvar og hvenær:

Skólar og sveitarfélög geta skipulagt sérsniðin stað- eða fjarnámskeið skólaárið 2025 og á vorönn 2026 í samráði við Kristínu R. Vilhjálmsdóttur með því að senda tölvupóst á kristinvil@gmail.com

Auk þess verður boðið upp á eftirfarandi námskeið á TEAMS í vor:

Leikskólar: þriðjudagur 25. mars kl. 14.30 - 16.00

Grunnskólar: miðvikudagur 26. mars 2025 kl. 14.30 - 16.00

Framhaldsskólar: fimmtudagur 27. mars kl. 14.30 - 16.00

Umsjón: Kristín R. Vilhjálmsdóttir, sjálfstætt starfandi ráðgjafi og hugmyndasmiður verkefnisins Menningarmót í samvinnu við Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280