Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Brautryðjendastarf í notkun gervigreindar til að skapa jöfnuð í menntun á Íslandi – Samhljómur við UNESCO 2025

24. janúar 2025

Við, hjá Miðstöð menntunar, munum leiða innleiðingu gervigreindar í menntakerfinu. Innleiðingunni er ætlað að auka gæði í kennslu og námsárangri barna en öll nálgun styður við framtíðarsýn UNESCO 2025. Með því að nýta sterka innviði Íslands, og leita eftir samstarfi við alþjóðleg fyrirtæki á sviði gervigreindar, höfum við lagt af stað í þá mikilvægu vegferð að skapa fyrirmynd að nýtingu gervigreindar sem tryggir gæðamenntun fyrir öll börn.

alþjóðlegur dagur menntunar

Þjónusta okkar á sviði gervigreindar beinist að:

  • Innleiðingu: Að gervigreind nýti Aðalnámskrá og námsefni til að einfalda yfirsýn kennara og aðstoði við samþættingu kennslu og hæfniviðmiða.

  • Stuðningi við kennara: Að veita fræðslu um hvernig á að nýta gervigreind og hlúa að lærdómssamfélagi sem þróar gervigreind áfram í samstarfi við okkur.

  • Tengja við Matsferil: Með Matsferli verður í fyrsta skipti hægt að nýta rauntímagögn til að fylgjast með framförum nemenda og veita upplýsingar fyrir stefnumótun, hvort sem er fyrir einstaka börn, skóla eða stjórnvöld. Gervigreindin mun þá geta sett fram tillögur varðandi næstu skref um það hvernig best sé að mæta barni þar sem það er statt.

Við höfum nú tekið fyrstu skrefin í að þróa gervigreind sem hefur fengið nafnið Björgin. Áfangaskipt áætlun felur í sér að auka umfang hennar jafnt og þétt í þeim tilgangi að innleiða hana á landsvísu, með áherslu á örugga notkun gervigreindar sem gagnast skólasamfélaginu til að mæta þörfum allra barna:

  • 1. áfangi: Klára hönnun og þróun á Björginni. Í dag er Björgin öflug leitarvél og gervigreind sem finnur viðeigandi námsefni og yfirlit yfir stuðningsúrræði sem eru í boði. Við erum í virkum samningaviðræðum við leiðandi aðila á sviði gervigreindar; Microsoft, Google, OpenAI, Anthropic og Meta, í þeim tilgangi að kanna áhuga þeirra á að vinna með okkur að heildstæðri lausn. Þá er vinnustofa með AWS fyrirhuguð í byrjun febrúar. Ætlunin er að koma á virku samstarfi við einhvert af ofangreindum fyrirtækjum til hagsbóta fyrir skólasamfélagið.

  • 2. áfangi: Koma á tilraunaverkefni fyrir gervigreind sem tengist Aðalnámskrá, hefja prufuvettvang og efla þjálfun kennara.

  • 3. áfangi: Útvíkka notkun gervigreindar á landsvísu, formfesta og fjölga samstarfsaðilum. Hefja gagnagreiningu til að móta skýra stefnu til framtíðar.

Miðstöð menntunar er miðlæg þjónustustofnun fyrir landið allt og meðal helstu verkefna er útgáfa náms- og kennsluefnis. Sá málaflokkur mátti í mörg ár þola talsverðan niðurskurð í fjárveitingum sem meðal annars leiddi til þess að útgáfa námsefnis dróst saman og staðnaði þar sem forvera okkar, Menntamálastofnun, var þröngt sniðinn stakkur.

Til að nýta það námsefni sem til er enn betur og auka nýsköpun og fjölbreytni sjáum við mikilvæg tækifæri í nýtingu gervigreindar. Með Björginni verður hægt að tryggja að kennarar hafi greiðari aðgang að viðeigandi námsefni, sem bætir og eykur nýtingu á því efni sem þegar er til staðar. Einnig mun hún geta boðið upp á aðlögun námsefnis sem þegar er til, þegar samið hefur verið við höfunda þess efnis. Þannig er hægt að nýta núverandi námsefni mun betur þó vissulega þurfi einnig að gefa mun meira út.

Eins og áður segir þá gefur gervigreindin kennurum tækifæri til að halda betur utan um námsárangur einstakra barna en áður hefur verið hægt. Þannig er kominn grunnur til byggja á tillögur um hvernig hægt sé að mæta þeim út frá niðurstöðum úr námsmatinu. Með markvissari greiningu á þörfum nemenda og snemmtækum íhlutunum geta skólar brugðist fyrr við og þannig dregið úr þeim kostnaði sem fylgir því að vandinn verði enn stærri og dragi þá úr líkum á því að börnin finni sig innan skólakerfisins.

Að lokum þá liggur ljóst fyrir að gervigreindin er ekki bara fjárhagslega hagkvæm, heldur mun hún einnig auka gæði menntunar og vellíðan nemenda og starfsfólks. Stefna okkar beinist að því að samþætta notkun gervigreindar og innleiðingu lausna til þess að styðja sem allra best við kennara og skólasamfélagið í heild sinni. Þannig munum við eiga auðveldara með að mæta hverju barni á þess eigin forsendum, auk þess að eignast betri upplýsingar til að staka stefnumótandi ákvarðanir. Allt leiðir þetta svo til þess að auðveldara verður fyrir okkur að bæta námsárangur barna í íslenska skólakerfinu. Þannig styrkjum við þau og hjálpum þeim að vaxa og dafna til framtíðar, í takt við styrkleika hvers og eins.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280