Embætti landlæknis, VIRK og Vinnueftirlit ríkisins bjóða upp á eftirmiðdagsfund með Christinu Maslach, prófessor við Berkleyháskóla í Kaliforníu, á netinu þriðjudaginn 26. maí kl. 15.00. Linda Bára Lýðsdóttir, doktor í sálfræði og sviðsstjóri hjá VIRK, fer yfir stöðuna á Íslandi í byrjun fundarins sem verður streymt á vefsíðum stofnananna þriggja.