Almannavarnastig lækkað niður á hættustig vegna COVID-19
26. maí 2020
Ríkislögreglustjóri, í samráði við sóttvarnalækni, hefur ákveðið að lækka almannavarnastig frá neyðarstigi niður á hættustig vegna kórónuveiru faraldursins (COVID-19). Neyðarstigi almannavarna var lýst yfir 6 mars s.l. þegar fyrsta smit var staðfest hér á landi.
Ríkislögreglustjóri, í samráði við sóttvarnalækni, hefur ákveðið að lækka almannavarnastig frá neyðarstigi niður á hættustig vegna kórónuveiru faraldursins (COVID-19). Neyðarstigi almannavarna var lýst yfir 6. mars sl. Fyrsta smit var staðfest hér á landi 28. febrúar.
Ferli sem fer í gang vegna neyðarstigs er lokið, en sóttvarnalæknir og stýrihópur um verkefni sem snýr að COVID-19, fylgjast eftir sem áður með þróun faraldursins og taka ákvarðanir miðað við framvindu hans.
Frá því að neyðarstigi var lýst yfir hafa 10 einstaklingar látið lífið, 1.804 smit hafa verið staðfest, yfir 20.370 farið í sóttkví og 58.856 sýni verið tekin. Hópsmit komu upp á nokkrum stöðum og þurfti þar að setja stífar reglur um samkomubann, sums staðar máttu ekki fleiri en 5 koma saman um tíma. Margir hafa farið í sjálfskipaða sóttkví, fyrirtæki þurftu mörg hver að gjörbreyta vinnuferlum sínum og skipta starfsmönnum upp í hópa sem ekki gátu umgengist hvern annan. Mörg fyrirtæki hafa neyðst til að grípa til uppsagna og voru um 34.000 manns án atvinnu í kjölfar faraldursins í lok apríl sl.
Sjá nánar upplýsingar á vef embættis landlæknis og covid.is.
Sjá Viðbragðsáætlun Almannavarna - Heimsfaraldur - Landsáætlun
Skilgreining á hættustigi:
Umtalsverðar hópsýkingar brjótast út hjá mönnum en þær eru enn staðbundnar. Veiran aðlagast mönnum í vaxandi mæli og umtalsverð hætta er á heimsfaraldri. Sýking kann að hafa verið staðfest hér á landi en lýsa má hættustigi þó sýking hafi ekki borist til landsins.
Faraldur er í rénun, færri tilfelli greinast en sýking er enn til staðar í samfélaginu. Enn er hætta á að faraldur taki sig upp aftur.