Í dag, 10. september, er alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga. Þá minnumst við, eins og reyndar alla daga, þeirra sem hafa fallið fyrir eigin hendi, ástvina þeirra og förum sérstaklega yfir forvarnir. Á álagstímum eins og við upplifum í heimsfaraldri COVID-19 skiptir sérstaklega miklu máli að standa saman að forvörnum.