Ársskýrsla 2019 er komin út
7. september 2020
Ársskýrsla embættis landlæknis fyrir árið 2019 er komin út á vef embættisins.
Í ársskýrslunni er fjallað um aðaláherslur starfsáætlunar 2019–2020 og hvernig tókst að framfylgja þeim á árinu 2019 auk þess sem greint er frá helstu viðfangsefnum ársins.
Ritstjóri ársskýrslunnar er Hrafnhildur Brynja Stefánsdóttir.
Ársskýrslan er eingöngu gefin út rafrænt.
Skoða nánar - Ársskýrsla embættis landlæknis 2019