Fara beint í efnið
Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

28. janúar 2025

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um leyfi til túnfiskveiða

2025

Auglýst er samkvæmt ákvæðum reglugerðar um 3. breytinug á reglugerð um veiðar á Austur-Atlanshafs bláuggatúnfiski. Umsóknarfrestur til og með 10. mars næstkomandi og senda á umsóknir á fiskistofa@fiskistofa.is.

Leyfið veitir heimild til að stunda línuveiðar á tímabilinu 1. ágúst til 31. desember á veiðisvæði norðan 42°00,00´N milli 10°00,00´V og 45°00,00´V. Íslenskum leyfishöfum er heimilt að veiða 200 tonn af bláuggatúnfiski.

Skilyrði

  • Skip þarf að hafa almennt leyfi til veiða í atvinnuskyni.

  • Skip á að vera að lágmarki 500 brúttótonn að stærð.

  • Skip þarf að búa yfir fullnægjandi útbúnað til veiða og meðhöndlunar á bláuggatúnfiskafla.

Í umsókn skal koma fram

  • Áætlun um hvenær stunda á veiðarnar.

  • Lýsingar á útbúnaði skips, einkum um vinnslu- og frystigetu.

  • Löndunarhafnir.

  • Upplýsingar um hvernig á að ráðstafa afla.

  • Upplýsingar um fyrri reynslu af túnfiskveiðum.

Athugið

  • Gefin verða að hámarki út þrjú leyfi á árinu 2025.

  • Fiskistofa áskilur sér því rétt til að hafna umsókn séu líkur til að viðkomandi skip sé að einhverju leiti óhentugt eða vanbúið til veiðanna með tilliti til öryggis eða búnaðar.

  • Í samræmi við kröfur ICCAT skulu skip sem hafa leyfi til veiða á bláuggatúnfisk hafa eftirlitsmann frá Fiskistofu um borð.

fiskur sjor