Umsókn um byggðakvóta 2023/2024 (3)
26. janúar 2024
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2023/2024.
Auglýst er eftir umsóknum samkvæmt ákvæðum reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2023/2024 og vakin er athygli á auglýsingu (1) um sérreglur sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2023/2024.
Úthlutað er fyrir:
Arnarstapa
Árskógssand
Bíldudal
Brjánslæk
Dalvík
Drangsnes
Eyrarbakka
Flateyri
Garð
Grenivík
Grímsey
Hauganes
Hnífsdal
Hólmavík
Hvammstanga
Höfn
Ísafjörð
Norðurfjörð
Ólafsfjörð
Patreksfjörð
Rif
Siglufjörð
Stokkseyri
Suðureyri
Tálknafjörð
Þingeyri
Þorlákshöfn
Leiðbeiningar:
Sækja skal um byggðakvóta í gegnum umsóknagátt. Til þess að opna umsóknagáttina þarf að nota kennitölu og íslykil útgerðarinnar. Fylla skal út allar upplýsingar sem beðið er um.
Niðurstaða umsóknar verður eingöngu birt í pósthólfi umsækjanda inn á Ísland.is
Óski umsækjandi eftir bréfi með öðrum leiðum þarf að senda beiðni um slíkt á fiskistofa@fiskistofa.is.
Staðfesting á samningi um vinnslu afla skal vera undirritaður og staðfestur af sveitarfélagi og honum skilað sem fylgiskjali í umsóknagátt á sama tíma og sótt er um.
Umsóknafrestur er til og með 9. febrúar 2024.