Fara beint í efnið
Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

Skipti á aflamarki - tilboð óskast

22. janúar 2024

Skiptimarkaðurinn opnar í dag, mánudaginn 22. janúar 2024 kl. 14:00. Frestur til að skila tilboðum er til kl. 14:00 mánudaginn 29. janúar 2024.

fiskistofa fiskar i neti mynd

Fiskistofa auglýsir eftir tilboðum í neðangreint aflamark í tilgreindri tegund í skiptum fyrir aflamark í þorski. Samkvæmt 4. gr. reglugerðar um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2023/2024.

Fisktegund

Þorskígildisstuðlar

Magn í boði

Norsk íslensk síld

0,15

3.225 tonn

Þorskur í norskri lögsögu

1

182.984 kg

Við mat tilboða er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar sem er fyrir þorsk 487,67 kr/kg.

Tilboð er sent í gegnum nýtt tilboðsmarkaðskerfi Fiskistofu. Prófkúruhafar eða einstaklingar sem veitt hefur verið umboð, sjá leiðbeiningar, geta lagt inn tilboð á tilboðsmarkaði á notendavænan og einfaldan hátt.

  • Ekki er gerð krafa um lágmarkstilboð.

  • Hver úthlutun aflaheimilda kostar 15.400 kr. samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu.

  • Vinsamlega kynnið ykkur reglugerð um skiptimarkað.