Skipti á aflamarki - tilboð óskast
12. desember 2023
Skiptimarkaðurinn opnar í dag, þriðjudaginn 12. desember 2023 kl. 14:00. Frestur til að skila tilboðum er til kl. 14:00 þriðjudaginn 19. desember 2023.
Fiskistofa auglýsir eftir tilboðum í neðangreint aflamark í tilgreindri tegund í skiptum fyrir aflamark í þorski. Samkvæmt 4. gr. reglugerðar um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2023/2024.
Fisktegund | Þorskígildisstuðlar | Magn í boði |
Arnarfjarðarrækja | 0,63 | 8.798 |
Við mat tilboða er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar sem er fyrir þorsk 481,09 kr/kg.
Tilboð er sent í gegnum nýtt tilboðsmarkaðskerfi Fiskistofu. Prófkúruhafar eða einstaklingar sem veitt hefur verið umboð, sjá leiðbeiningar, geta lagt inn tilboð á tilboðsmarkaði á notendavænan og einfaldan hátt.