Fara beint í efnið
Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

Aflamarksúthlutun fiskveiðiárið 2023/2024

25. ágúst 2023

Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2023/2024.

fiskistofa fiskar i neti mynd

Aflmarki fyrir fiskveiðiárið 2023/2024 hefur verið úthlutað á grundvelli aflahlutdeildar fiskiskips og fengu 360 skip í eigu 282 aðila úthlutað.  Úthlutun er tæp 337 þúsund þorskígildistonn. Úthlutun í þorski er rúm 166 þúsund þorskígildistonn en var tæp 164 þúsund þorskígildistonn á síðasta fiskveiðiári. Úthlutun í ýsu er rúm 55 þúsund þorskígildistonn og hækkar um 7 þúsund þorskígildistonn milli ára.

Fyrirtæki með hæstu úthlutunina:  

  • Brim hf. 10,44%  

  • Ísfélag hf.  7,00% 

  • Samherji Ísland hf. 6,93% 

  • Fisk Seafood ehf. 6,14% 

  • Þorbjörn hf. 5,33% 

Skip með hæstu úthlutunina: 

  • Guðmundur í Nesi RE 13 (2626), Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. með 11.056 þorskígildistonn 

  • Sólberg ÓF 1 (2917), Ísfélag hf. með 9.840 þorskígildistonn 

  • Örfirisey RE 4 (2170), Brim hf. með 7.978 þorskígildistonn 

Af leyfðum heildarafla eru dregin frá 5,3% sem skiptast með eftirfarandi hætti:  

  • Skel og rækjubætur 2.442 tonn 

  • Byggðakvóti til fiskiskipa 6.500 tonn 

  • Byggðakvóti Byggðastofnunar 6.584 tonn 

  • Frístundaveiðar 200 tonn 

  • Strandveiðar 11.100 tonn 

  • Línuívílnun 2.025 tonn 

Úthlutun skel- og rækjubóta má vænta í næstu viku.

Nánari upplýsingar um úthlutunina er að finna í reglugerð, á gagnasíðum Fiskistofu og í samantekt fiskveiðiáramóta.