Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 26. nóv. 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 2. júní 2021

384/2013

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1061/2010 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/30/EB að því er varðar orkumerkingar þvottavéla til heimilisnota.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í tölul. 11k í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 218/2012, frá 7. desember 2012, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 1061/2010 frá 28. september 2010 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2030/10/ESB að því er varðar orkumerkingar þvottavéla til heimilisnota.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir liðum 4c, 4e, 4i, 4j, 4k, 4l, 4m, 4n, 4s, 4t, 11c, 11e, 11i, 11j, 11k, 11l, 11m, 11n, 11s og 11t í kafla IV í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 24/2016, frá 5. febrúar 2016, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 518/2014 frá 5. mars 2014 um breytingu á framseldum reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1059/2010, (ESB) nr. 1060/2010, (ESB) nr. 1061/2010, (ESB) nr. 1062/2010, (ESB) nr. 626/2011, (ESB) nr. 392/2012, (ESB) nr. 874/2012, (ESB) nr. 665/2013, (ESB) nr. 811/2013 og (ESB) nr. 812/2013 að því er varðar merkingu orkutengdra vara á Netinu.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir liðum 4c, 4e, 4i, 4j, 4k, 4l, 4m, 4n, 4s, 4t, 4o, 4p, 4q, 4r og 4u í kafla IV í II. viðauka og eftir liðum 11c, 11e, 11i, 11j, 11k, 11l, 11m, 11n, 11s, 11t, 11o, 11p, 11q, 11r og 11u í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 197/2017, frá 27. október 2017, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/254 frá 30. nóvember 2016 um breytingu á reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1059/2010, (ESB) nr. 1060/2010, (ESB) nr. 1061/2010, (ESB) nr. 1062/2010, (ESB) nr. 626/2011, (ESB) nr. 392/2012, (ESB) nr. 874/2012, (ESB) nr. 1015/2010, (ESB) nr. 1016/2010, (ESB) nr. 327/2011, (ESB) nr. 206/2012, (ESB) nr. 665/2013, (ESB) nr. 811/2013, (ESB) nr. 812/2013, (ESB) nr. 65/2014, (ESB) nr. 1254/2014, (ESB) 2015/1094, (ESB) 2015/1186 og (ESB) 2015/1187 að því er varðar beitingu vikmarka í sannprófunaraðferðum.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1061/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 16/2013, 14. mars 2013, bls. 138.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 218/2012 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 18/2013, 21. mars 2013, bls. 21.

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar og ráðsins (ESB) nr. 518/2014 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 18/2016, 31. mars 2016, bls. 253.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2017/254 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74/2017, 16. nóvember 2017, bls. 45.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 8. gr. laga nr. 72/1994, um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi orkunotkun heimilistækja o.fl., öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 397/1996, með síðari breytingum.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.