Leyfi til hænsnahalds
Hænsnahald er leyfilegt utan skipulagðra landbúnaðarsvæði en sækja þarf um leyfi heilbrigðisnefndar viðeigandi sveitarfélags.
Með umsókn skal fylgja:
skriflegt samþykki nágranna sem eiga aðliggjandi lóðir. Ef um fjöleignarhús er að ræða skal að auki liggja fyrir samþykki sameigenda. Sé umsækjandi leigjandi skal fylgja samþykki leigusala
afstöðumynd sem sýnir staðsetningu hænsnakofa og gerðis á lóð
Leyfi eru gefin út til 4 ára í senn.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur útbúið leiðbeiningar um förgun úrgangs og annað sem tengist hænsnahaldi í Reykjavík.
Þjónustuaðili
Reykjavíkurborg