Húsnæði, vistun og búseta fyrir fatlað fólk
Allir þurfa þak yfir höfuðið. Fyrir hreyfihamlaða verða aðgengismál að vera í lagi og sumir þurfa að njóta þjónustu og aðstoðar inni á heimilum allan sólarhringinn.
Húsnæði, vistun og búseta
Fatlað fólk og öryrkjar búa eins og aðrir, ýmist í eigin húsnæði eða leiguhúsnæði. Önnur búsetuform geta verið dvalarheimili, skammtímavistun, áfangaheimili, íbúðaheimili eða sambýli, íbúðakjarnar og félagslegt leiguhúsnæði.
Um málefni fatlaðs fólks á vef Stjórnarráðsins
Sjálfstætt líf á vef Þekkingarmiðstöðvar Sjálfsbjargar
Sótt er um skammtímavistun fyrir fötluð börn og fullorðna og varanlegt húsnæði hjá sveitarfélögum.
Þeir sem hafa með búsetu- og húsnæðismál fatlaðs fólks og öryrkja að gera eru sveitarfélögin, félagsþjónusta á þeirra vegum og Öryrkjabandalag Íslands. Á vefjum þeirra má finna ítarlegar upplýsingar.
Húsnæðismál á vef Öryrkjabandalags Íslands
Þjónusta sveitarfélaga á vef Þekkingarmiðstöðvar Sjálfsbjargar
Vert að skoða
Sjónarhóll – ráðgjafarmiðstöð fyrir foreldra barna með sérþarfir
Reglur sveitarfélaga um fjárhagsaðstoð og félagslega heimaþjónustu
Réttargæslumenn fatlaðs fólks á vef Þekkingarmiðstöðvar Sjálfsbjargar
Þjónusta við fatlað fólk á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga