Heimsóknir - vefur fyrir aðstandendur
Vefurinn heimsokn.is býður upp á einfalt kerfi sem heldur utan um heimsóknir aðstandenda til vinar eða ættingja sem af einhverjum ástæðum þarf á sérstakri umhyggju vina og vandamanna að halda.
Um leið og viðkomandi ættingi eða vinur er skráður í kerfið í kerfið verður til aðgangsorð. Því næst getur þú á einfaldan hátt boðið vinum og vandamönnum að tengjast kerfinu.