Fjögur spennandi störf auglýst hjá Sjúkratryggingum
Sjúkratryggingar leita að öflugu fólki í störf á ýmsum lykilsviðum stofnunarinnar. Þetta er tækifæri til að vinna í spennandi og síbreytilegu umhverfi þar sem þú getur lagt þitt af mörkum til að tryggja heilbrigði þjóðarinnar.
Umsóknarfrestur eftirfarandi auglýsinga er til og með 5. febrúar 2024. Hægt er að sjá frekari upplýsingar og sækja um störfin á Starfatorgi.