Fara beint í efnið

24. ágúst 2024

Viðbótar drónabann

Vegna eldgoss og nauðsynlegs neyðar- og rannsóknaflugs, hefur Samgöngustofa að beiðni samhæfingarstöðvar Almannavarna bannað drónaflug yfir og umhverfis eldgosasvæðið á Reykjanesi. Bannið gildir til 08:00 að morgni mánudagsins 26. ágúst nk.

Dróni á flugi við eldsumbrot

Bannið er á svæði sem nær í fjögurra sjómílna radíus umhverfis eldgosið, miðað er við hnit 635300N02223W.

Bannið er til viðbótar við fyrra bann sem gildir til miðnættis 28. ágúst 2024.

Undanþágubeiðnir berist samhæfingarstöð Almannavarna í netfangið info@sst.is eða í síma 831-1644.