3. nóvember 2022
3. nóvember 2022
Umsókn um tækifærisleyfi uppfærð
Nú hefur umsókn um tækifærisleyfi verið uppfærð.
Ferlið er því orðið einfaldara og þægilegra með bættum leiðbeiningum.
Sótt er um tækifærisleyfi með rafrænum skilríkjum á Ísland.is.
Sækja þarf um leyfi til að halda skemmtun eða viðburð þar sem þörf er á eftirliti eða löggæslu. Miðað er við að sækja þurfi um leyfið ef seldur er aðgangur að samkomunni. Leyfið getur verið án áfengisveitinga eða með.