2. júní 2024
2. júní 2024
Tilkynning um niðurstöðu talningar við forsetakjör 1. júní 2024
Landskjörstjórn hafa borist niðurstöður talningar frá yfirkjörstjórnum Norðvesturkjördæmis, Norðausturkjördæmis, Suðurkjördæmis, Suðvesturkjördæmis, Reykjavíkurkjördæmis suður og Reykjavíkurkjördæmis norður.
Það tilkynnist hér með skv. 107. gr. kosningalaga nr. 112/2021 að niðurstaða talningar atkvæða við forsetakjör þann 1. júní 2024 er svohljóðandi:
Skipting atkvæða | Hlutfall af greiddum atkvæðum | |
Gild atkvæði: | 214.318 | |
Arnar Þór Jónsson | 10.881 | 5,05% |
Ásdís Rán Gunnarsdóttir | 394 | 0,18% |
Ástþór Magnússon Wium | 465 | 0,22% |
Baldur Þórhallsson | 18.030 | 8,36% |
Eiríkur Ingi Jóhannsson | 101 | 0,05% |
Halla Hrund Logadóttir | 33.601 | 15,58% |
Halla Tómasdóttir | 73.182 | 33,94% |
Helga Þórisdóttir | 275 | 0,13% |
Jón Gnarr | 21.634 | 10,03% |
Katrín Jakobsdóttir | 53.980 | 25,03% |
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir | 1.383 | 0,64% |
Viktor Traustason | 392 | 0,18% |
Auðir seðlar | 803 | 0,37% |
Ógildir seðlar af öðrum ástæðum | 514 | 0,19% |
Samtals auðir og ógildir | 1.317 | 0,61% |
Samtals | 215.635 | |
Fjöldi kjósenda á kjörskrá | 266.935 | |
Kjörsókn | 80,8% |
Fjöldi kjósenda á kjörskrá er birtur með fyrirvara um leiðréttingar sem gerðar hafa verið á kjörskrá eftir útgáfu hennar þann 26. apríl sl.
Landskjörstjórn mun koma saman þann 25. júní nk. til þess að úrskurða um gildi ágreiningsatkvæða og lýsa úrslitum kosninganna, sbr. 120. gr. kosningalaga. Vakin er athygli á því að úrskurður landskjörstjórnar kann að hafa áhrif á endanlegan fjölda gildra atkvæða.