28. júní 2024
28. júní 2024
Sumarlokun í móttöku Fjársýslunnar
Dagana 29. júlí - 5. ágúst verður móttaka Fjársýslunnar lokuð vegna sumarleyfa, en opnar á ný eftir verslunarmannahelgi, þriðjudaginn 6. ágúst.
Þrátt fyrir lokun móttökunnar má senda fyrirspurnir og erindi til afgreiðslu á eftirfarandi netföng Fjársýslunnar:
Mannauðs- og launafyrirspurnir á laun@fjs.is
Innheimtu- og greiðslufyrirspurnir á innheimta@fjs.is
Bókhaldsfyrirspurnir á bokhald@fjs.is
Aðgangs- og tæknifyrirspurnir á hjalp@fjs.is
Starfsfólk Fjársýslunnar sendir öllum hlýjar kveðjur inn í sumarið og vonar að sumardagarnir veiti í senn birtu og gleði.