6. júlí 2023
6. júlí 2023
Sumarlokun í móttöku Fjársýslunnar
Dagana 31. júlí - 4. ágúst verður móttaka Fjársýslunnar lokuð vegna sumarleyfa, en opnar á ný eftir verslunarmannahelgi, þriðjudaginn 8. ágúst.
Þrátt fyrir lokun móttökunnar má senda fyrirspurnir og erindi til afgreiðslu gegnum Þjónustugátt Fjársýslunnar.
Starfsfólk Fjársýslunnar sendir öllum hlýjar kveðjur inn í sumarið og vonar að sumardagarnir veiti í senn birtu og gleði.