16. september 2024
16. september 2024
Samgönguvika 16. - 22. september
Margir góðir viðburðir verða í Evrópskri samgönguviku sem hefst mánudaginn 16. september og stendur til 22. september, en þema vikunnar að þessu sinni er Almannarými – virkir ferðamátar.
Frá árinu 2002 hafa borg og bæjarfélög á Íslandi tekið þátt í samstilltu átaki sveitarfélaga í Evrópu til að ýta undir sjálfbærar samgöngur. Umhverfis- orku og loftslagsráðuneytið hefur umsjón með vikunni á Íslandi.
Markmið vikunnar er að kynna íbúum í þéttbýli samgöngumáta sem eru allt í senn eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft.
Viðburðir verða haldnir á vegum félagasamtaka og sveitarfélaga, en nálgast má upplýsingar um dagskrá vikunnar á vef Stjórnarráðsins, á heimasíðum sveitarfélaganna, auk Facebook síðu vikunnar.
Samgöngustofa mun svo standa fyrir Umferðaþingi föstudaginn 20. september.
Vikan endar svo á Bíllausa deginum, 22. september, þegar almenningur er hvattur til þess að skilja bílinn eftir heima og til að auðvelda það verður frítt í landsbyggðarstrætó og í strætó á höfuðborgarsvæðinu.