Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

22. desember 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Reglur um skráningu á grálúðu

Fiskistofa vekur athygli á því að felldir hafa verið brott grunnstuðlar fyrir grálúðu.

Fiskistofa logo

Fiskistofa vekur athygli á því að felldir hafa verið brott grunnstuðlar fyrir grálúðu samkvæmt auglýsingu nr. 1463/2021. Grálúða fellur því ekki lengur undir nýtingakerfið. Einnig hefur verið gerð breyting á reglugerð um nýtingu afla og aukaafurða og er nú skylt að hirða grálúðu sporða, og er samtala sporða, hausa og búka notuð til grundvallar aflaskráningu.