31. janúar 2022
31. janúar 2022
Ný útgáfa sakavottorða
Ný og endurbætt útgáfa stafrænna sakavottorð er nú aðgengileg.
Nú geta allir sótt sakavottorð í gegnum stafræna umsókn, óháð stöðu í sakaskrá. Áður voru aðeins útgefin stafræn sakavottorð án brota.
Þá eru sakavottorð nú sjálfkrafa með þýðingu á ensku, það er því ekki lengur þörf á því að sækja sérstaklega um vottorð á ensku.
Umsóknin er í nýju umsóknarkerfi Ísland.is og sömuleiðis tengd nýju greiðslukerfi Ísland.is. Greiðslukvittanir verða strax sýnilegar undir Fjármál á Mínum síðum Ísland.is
Umsóknin er tengd við starfskerfi sýslumanna. Starfsmenn sýslumanna geta því fylgst með öllum málum og veitt þjónustu ef þess þarf.
Mikil aukning hefur verið á útgáfu sakavottorða undanfarin ár en árið 2021 voru 13.500 sakavottorð gefin út sem er 37% aukning milli ára. Undir lok ársins voru sjö af hverjum tíu vottorðum sótt stafrænt sem hefur í för með sér gríðarlegan tímasparnað fyrir almenning. Með einföldum útreikningi um vegalengdir má ætla að stafræn útgáfa sakavottorða spari umsækjendum árlega um 190 þúsund kílómetra í akstur og um 11.000 vinnustundir hjá sýslumönnum og umsækjendum. Sparnaður samfélagsins af þessum stafrænu umbreytingum er því beinn og áþreifanlegur og hleypur á tugum ef ekki hundruðum milljóna, að ógleymdum jákvæðum umhverfisáhrifum.