19. janúar 2024
19. janúar 2024
Námskeið fyrir prófdómara flugskírteina SP
Samgöngustofa mun halda upprifjunarnámskeið fyrir prófdómara flugskírteina einstjórnarloftfara (single pilot) fimmtudaginn 7. mars í Ármúla 2.
Samgöngustofa mun halda upprifjunarnámskeið fyrir prófdómara flugskírteina einstjórnarloftfara (single pilot) fimmtudaginn 7. mars í húsnæði Samgöngustofu, Ármúla 2, frá kl. 10:00 til 16:00. Þátttakendur eru beðnir um að mæta með tölvu á námskeiðið.
Skilyrði fyrir endurnýjun/framlengingu prófdómararéttinda er að umsækjandi hafi setið slíkt námskeið á síðastliðnum 12 mánuðum.
Námskeiðsgjaldið er 38.854 kr. og innifaldar eru veitingar meðan á námskeiði stendur. Vinsamlegast sendið skráningu með tölvupósti á netfangið fcl@icetra.is eigi síðar en 1. mars næstkomandi.