25. október 2024
25. október 2024
Mörk Reykjavíkurkjördæma
Mörk kjördæma í Reykjavík fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember 2024.
Mörk Reykjavíkurkjördæma suður og norður skulu dregin um miðlínu eftirfarandi gatna frá vestri til austurs:
Eftir Hringbraut (frá Ánanaustum), gömlu Hringbraut, Miklubraut, Ártúnsbrekku og Vesturlandsvegi að Víkurvegi. Þaðan skulu mörkin dregin eftir Víkurvegi til austurs að Reynisvatnsvegi, í austur að Jónsgeisla og eftir Jónsgeisla að Jónsgeisla að ISN93 hniti 366183, 405631. Þaðan í beinni línu að gatnamótum Þórðarsveigs og Andrésarbrunns (ISN93 hnit: 366349, 405624). Þaðan eftir miðlínu Þórðarsveigs að Marteinslaug og eftir Marteinslaug að ISN93 hniti 366709, 405564 og þaðan í beinni línu að miðlínu Biskupsgötu (ISN93 hnit: 366822, 405465). Eftir miðlínu Biskupsgötu að gatnamótum Reynisvatnsvegar. Þaðan eftir miðlínu Hólmsheiðarvegar allt til móts við Haukdælabraut 66 (ISN93 hnit: 367088, 405485) og þaðan skal dregin bein lína að borgarmörkum (ISN93: hnit 369097, 405485).
Hér að neðan er uppdráttur sem sýnir mörk Reykjavíkurkjördæma í Grafarholti með rauðri línu: