8. ágúst 2022
8. ágúst 2022
Makrílsala
Fiskistofa hefur lokið afgreiðslu umsókna sem bárust í síðustu viku um úthlutun viðbótarheimilda í makríl í samræmi við reglugerð nr. 725/2020, um ráðstöfun 4.000 lesta af viðbótarheimildum í makríl.
Fiskistofa hefur lokið afgreiðslu umsókna sem bárust í síðustu viku um úthlutun viðbótarheimilda í makríl í samræmi við reglugerð nr. 725/2020, um ráðstöfun 4.000 lesta af viðbótarheimildum í makríl. Að þessu sinni fengu 12 skip úthlutun. Samþykktar umsóknir voru eftirfarandi:
Skip númer: | Nafn | Magn kg | Verð kr |
6284 | Sæberg KE-12 | 25.000 | 131.750 |
1621 | Guðrún GK-96 | 20.000 | 105.400 |
2763 | Brynja SH-236 | 50.000 | 263.500 |
2810 | Sunna Rós SH-123 | 50.000 | 263.500 |
2595 | Tjúlla GK-29 | 50.000 | 263.500 |
1971 | Stakasteinn GK-132 | 25.000 | 131.750 |
2256 | Guðrún Petrína HU-107 | 50.000 | 263.500 |
2586 | Júlli Páls SH-712 | 50.000 | 263.500 |
2106 | Sigrún SH-297 | 10.000 | 52.700 |
1511 | Ragnar Alfreðs GK-183 | 50.000 | 263.500 |
1666 | Svala Dís KE-29 | 50.000 | 263.500 |
7412 | Halla Sæm SF-23 | 20.000 | 105.400 |
Til að fá úthlutun verður útgerð skipsins að greiða fyrir úthlutunina eigi síðar en fyrir klukkan 21:00 á öðrum virkum degi þessarar viku. Ef ekki hefur verið greitt fyrir þann tíma fellur réttur til úthlutunar niður.
Að þessari úthlutun lokinni þá eru 3.550 tonn eftir í makrílpottinum til umsóknar fyrir skip í B flokk. Aðeins skip í B flokki sem hafa fengið 30 tonn eða minna, eða hafa veitt 75% eða meira af úthlutun sinni geta fengið viðbótarúthlutun. Ef skip hefur áður fengið viðbótarúthlutun þá þarf það að hafa veitt 50% af þeirri úthlutun til að eiga rétt á nýrri. Hámarksúthlutun skips hverju sinni er 50 tonn og gjald fyrir úthlutun er 5,27 krónur á hvert kíló.
Á fyrsta virka degi hverrar viku afgreiðir Fiskistofa þær umsóknir sem bárust vikuna á undan. Fyrir klukkan 21 annars virka dags þurfa þær útgerðir sem hafa fengið vilyrði um úthlutun að greiða fyrir úthlutunina með greiðsluseðli sem birtist í heimabanka þeirra. Að öðrum kosti fellur réttur þeirra til úthlutunar niður.