10. ágúst 2023
10. ágúst 2023
Líður að lokum grásleppuvertíðar
Lok grásleppuvertíðar eru laugardaginn 12. ágúst á öllum veiðisvæðum að innanverðum Breiðafirði undanskildum en þar líkur veiðum 31. ágúst.
Sótt var um grásleppuleyfi þetta árið í gegnum nýja umsóknargátt Fiskistofu. Það er gaman frá því að segja að grásleppuveiðifólk stóð sig vel í þessu nýja umsóknarferli og voru vandamál minniáttar.
Í upphafi var leyfi til grásleppuveiða gefið út til 25 daga en var tvisvar fjölgað með reglugerðarbreytingu, fyrst í 35 daga og loks í 45 daga.
Gefin voru út 174 grásleppuveiðileyfi á árinu og heildarafli óslægðrar Grásleppu er nú tæp 3.800 tonn og var henni landað á 35 stöðum um landið.
Aflahæstu hafnir voru:
Stykkishólmur með 760 tonn
Drangsnes með 340 tonn
Patreksfjörður með 240 tonn
Aflahæstu bátarnir voru:
Fjóla SH – 7 (2070) með rúmlega 70 tonn
Magnús HU – 23 (2813) með rúmlega 68 tonn
Sigurey ST -22 (1774) með rúmlega 67 tonn.