5. janúar 2024
5. janúar 2024
Launamiðar 2024 vegna ársins 2023
Nú á uppfærslu launamiðaforritsins að vera lokið þannig að hægt er að hefja launamiðavinnsluna.
Meðfylgjandi eru leiðbeiningar sem einnig er að finna á Upplýsingatorgi Fjársýslunnar
Launamiðavinnsla 2024 - Leiðbeiningar PDF
Á heimasíðu Skattsins má finna leiðbeiningar og útskýringar varðandi launamiðana, launaframtalið og upplýsingar um skilafrest undir Orðsending nr. 3/2023 – Leiðbeiningar um útfyllingu og rafræn gagnaskil – Launamiðar, hlutafjármiðar og launaframtal 2024.
Hjá Skattinum má einnig finna reglur um skattmat.
Skilafresturinn er til 20. janúar 2024.