31. október 2023
31. október 2023
Innheimtugagnavinnsla lögaðila í samvinnu við Skattinn
Fjársýslan hefur undanfarið unnið að Innheimtugagnavinnslu lögaðila í samvinnu við Skattinn. Í vinnslunni eru lagðir skattar, samkvæmt framtali, á aðila í atvinnurekstri (lögaðila).
Innheimtu- og álagningarseðla er hægt að nálgast á www.island.is og á www.skattur.is Greiðsluseðlar vegna álagningar hafa verið birtir á Ísland.is og sendir til skeytamiðlunar fyrir lögaðila sem nýta sér þá þjónustu.
Miðvikudaginn 1. nóvember verða greiddar út inneignir að upphæð kr. 23,5 milljarða til rúmlega 8 þúsund lögaðila.
Inneignir upp á kr. 3,0 milljarða verða greiddar út síðar.
Hægt er að nálgast greiðslustöðu undir fjármál á www.island.is en nánari upplýsingar veita Innheimtumenn ríkissjóðs.