Fara beint í efnið

26. september 2024

Gjöf til sjúkradeildar HSU í Vestmannaeyjum

Nýverið færðu heiðurskonurnar í Kvenfélaginu Heimaey í Vestmannaeyjum sjúkradeild HSU í Vestmannaeyjum blóðtökuvagn.

takk

Svona færanlegur vagn léttir starfsmönnum vinnuna við nálauppsetningar og blóðtöku m.a. þar sem allt sem til þarf er á einum stað og kemur sér einstaklega vel. Heildarandvirði gjafarinnar er 368.280 kr.

Það voru þær Hrefna Hilmisdóttir formaður, Katrín Gunnarsdóttir, gjaldkeri, Ásta Kjartansdóttir, ritari sem afhentu gjöfina fyrir hönd Kvennfélagsins Heimaey.

Kvenfélagið Heimaey er einn af sterkum bakhjörlum HSU og gjafir eins og þessar verða seint fullþakkaðar og eru mikill styrkur fyrir starfsfólkið og starfsemina.

Þökkum öllum heiðurskonunum í Kvenfélaginu Heimaey innilega fyrir gjöfin og óskum þeim öllum velfarnaðar í sínu góða starfi um ókomna tíð.

Gjöf frá kvenf. Heimaey